Umhverfisvernd

Áherslur í umhverfismenntMarkmið skólans er að efla umhverfisvitund. Í því felst m.a. að stuðla að ábyrgri afstöðu til náttúrulegra gæða og

Umhverfisvitund

Áherslur í umhverfismennt

Markmið skólans er að efla umhverfisvitund. Í því felst m.a.

  • að stuðla að ábyrgri afstöðu til náttúrulegra gæða og auðlindanýtingar,
  • að glæða skilning á vistkerfum og sjálfbærri þróun,
  • að skapa tækifæri til útivistar í íslenskri náttúru,
  • að tengja umhverfismál við sögu og menningu þjóðarinnar,
  • að hvetja til góðrar umgengni um náttúru, híbýli og nánasta umhverfi.

Leiðir skólans að þessum markmiðum felast einkum í völdum námsþáttum kjarnaáfanga í náttúrufræði og fyrirkomulagi lífsleikniáfangans LÍL111. Þann áfanga taka nemendur um miðbik námsins og er hann samvinnuverkefni kennara í jarðfræði, líffræði og sögu. Þar er lögð áhersla á samspil manns og náttúru í fortíð, nútíð og framtíð. Farin er dagsferð á Þingvallasvæðið og margvíslegar athuganir gerðar bæði á hinu manngerða umhverfi og náttúrulega. Öllu starfsfólki skólans er uppálagt að sýna gott fordæmi og leiðbeina um góða umgengni í skólanum og í ferðum á vegum hans.
headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn
moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf