Kennslustefna

Leiðarljós skólans (sbr. stefnuskrána hér að framan) er hin kennslufræðilega stefna í hnotskurn. Áfangakerfið gegnir veigamiklu hlutverki í útfærslunni,

Kennslufræðileg stefna

Leiðarljós skólans (sbr. stefnuskrána hér að framan) er hin kennslufræðilega stefna í hnotskurn. Áfangakerfið gegnir veigamiklu hlutverki í útfærslunni, bæði hvað varðar ábyrgð nemenda og fjölbreytni námsins. Nemendur skipuleggja sjálfir áfangaval sitt að því marki sem framboð og undanfarareglur leyfa, þeir geta haft áhrif á framboð valáfanga og komið með hugmyndir að nýjum áföngum. Þá gefst nemendum og kostur á að ljúka áfanga án þess að sitja kennslustundir og að vinna sjálfstæð verkefni sem telja til eininga (sjá kaflann um óhefðbundið nám).

Framboð valáfanga miðast við tvíþætt hlutverk; annars vegar að gefa kost á breidd í námi og hins vegar dýpkun á afmörkuðu sviði t.d. með tilliti til áætlaðs háskólanáms.

Leitast er við að hafa fjölbreytni í kennsluaðferðum og að virkja nemendur bæði í skóla og heima fyrir. Sveigjanleiki í lengd kennslustunda og opnir stoðtímar setja nám nemandans í brennidepil fremur en kennslu kennarans og endurspeglar ábyrgð nemenda.
Tölvunotkun og upplýsingatækni koma við sögu í flestum námsgreinum og leggur skólinn áherslu á greiðan aðgang nemenda að tölvum í skólanum. Heimildaöflun, ritgerðir, verkefnavinna, tilraunir og notkun kennsluforrita eru órofa hluti námsins. Í nær öllum áföngum byggist námsmat bæði á vinnu nemandans yfir önnina og lokaverkefni eða lokaprófi í annarlok.

Kennarar eru hvattir til þess að vera sívirkir í þróunarstarfi og stefna skólans er að hlúa að nýbreytnistarfi á vegum einstakra kennara og kennarahópa bæði með fjárhagslegum og faglegum stuðningi.
headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn
moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf