Markmið skólans er að efla alhliða forvarnir og heilsuvernd. Í því felst m.a.
- að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og traustri sjálfsmynd nemenda,
- að koma í veg fyrir reykingar, áfengisneyslu og aðra vímuefnanotkun nemenda,
- að styðja nemendur sem vilja losna úr ánauð vímuefna.
Leiðir skólans að þessum markmiðum felast einkum í starfi forvarnafulltrúa, skýrum reglum og almennri fræðslu. Þá leggur
skólinn áherslu á fjölbreytni í líkamsræktarkennslu og að nemendum bjóðist hollur matur á hóflegu verði innan
skólans.
Forvarnafulltrúi
Hjúkrunarfræðingur skólans gegnir jafnframt hlutverki forvarnafulltrúa sem ætlað er
- að samhæfa forvarnafræðslu fyrir nemendur og starfsfólk,
- að vera til viðtals fyrir nemendur, starfsfólk og þá sem skólanum tengjast,
- að aðstoða nemendur sem vilja hætta neyslu og styðja nemendur sem hafa valið sér líf án áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna.
- að vera talsmaður forvarnastefnunnar og fylgja henni eftir í samráði við stjórnendur og forvarnateymi sem kallað er saman eftir þörfum.
Fræðsla
Forvarnateymi og félagsmálafulltrúar
Viðtalstímar
Forvarnafulltúinn, Áshildur Arnarsdóttir hjúkrunarfræðingur. Aðsetur Áshildar er í Gimli. Netfang: ashildur@mh.is



