TilgangurSjálfsmat er hluti af lögbundinni starfsemi skólans. Megintilgangur þess er að stuðla að framgangi markmiða skólans, meta
hvort þeim hafi verið náð, endurskoða þau og stuðla að umbótum og vera þannig eðlilegur hluti af starfs – og
þróunaráætlunum.
TilurðSjálfsmatskerfi Menntaskólans við Hamrahlíð er þróað af stjórnendum og starfsfólki skólans. Það er að verulegum hluta sprottið úr samantekt fjölmargra reglulegra athugana sem felldar hafa verið í eina heild með hliðsjón af viðmiðum menntamálaráðuneytisins um sjálfsmat.
Stjórnun

Sérstakt teymi ber yfirábyrgð á framkvæmd sjálfsmatsins hverju sinni, skiptir verkum og stýrir framvindunni í samræmi við vinnuferla sem hlotið hafa samþykki hlutaðeigandi. Teymið er valið til allt að þriggja ára í senn; rektor velur einn fulltrúa og a.m.k tveir skulu valdir á kennarafundi. Meðal annars gerir teymið áætlun árlega um breytilegar kannanir, rýnihópa og ofl. sem ekki er niðurneglt í langtímaáætlun. Teymið kynnir áætlunina og fylgir henni eftir.
Settir hafa verið rammar og tímaviðmið um sjálfsmatsstarfið.
Sjálfsmat 2008 vor til 2010 haust - tímaás, verklýsingar og matsteymi