Kennarar, umsjónarkennarar, deildarstjórar og fagstjórar veita upplýsingar um nám og kennslu í sínu fagi eða deild.
Námsráðgjafar veita nemendum persónulega ráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf og liðsinna nemendum varðandi upplýsingaöflun um námið hér við skólann og nám að loknu stúdentsprófi.
Hjúkrunarfræðingur skólans veitir nemendum ráðgjöf og hefur það hefur það markmið að stuðla að líkamlegu, andlegu og félagslegu heilbrigði nemenda.
Í Handbók forráðamanna, á heimasíðu skólans, eru leiðbeiningar um aðgang að Innu, upplýsingakerfi framhaldskólanna, þar sem skoða má námsferil, fjarvistir og fleira. Þar eru einnig leiðbeiningar um aðgang að Námsneti þar sem kennarar setja inn áætlanir og verkefni. Upplýsingar má einnig fá á skrifstofu skólans.



