Leitast skal við að upplýsingaflæði sé gott milli allra aðila skólans, gott aðgengi að stjórnendum og að allir stafsmenn fylgist með því sem kemur í pósthólf fyrir framan inngang á kennarastofu eða berst til þeirra með netpósti. Á kennarastofu er mappa s.k. skilaboðaskjóða, sem í eru sett afrit af dreifiritum, fundargerðum, bréfum til starfsmanna og fleira. Haldnir eru a.m.k. 3 kennarafundir á hverri önn og fleiri ef þörf þykir eða ef 1/3 hluti kennara fer fram á það. Skólastjórnar- og skólanefndarfundir eru haldnir reglulega og fundargerðir birtar á innra neti skólans og í skilaboðaskjóðu á kennarastofu.
Einnig eru þessi upplýsingarit gefin út reglulega:
Námsvísir – skólanámskrá.
Áfangar - skilaboð til nemenda frá stjórnendum í upphafi annar, vegna valvikna og staðfestingardags.
Kennarapóstur – skilaboð frá stjórnendum til kennara.
Skrifstofupóstur - skilaboð frá stjórnendum til skrifstofu- og annarra starfsmanna en kennara.
Téð og heyrt – fréttablað starfsmanna.
Fréttabréf til forráðamanna a.m.k. einu sinni á hverri önn.
Haldið verði áfram að þróa heimasíðu skólans þannig að þar sé alltaf að finna nýjar og ítarlegar upplýsingar um skólann og skólastarfið.




