Ágæti nýnemi í MH. Við minnum á fund þinn með rektor og umsjónarkennara kl. 14:00 þann 4. janúar. Þá færð þú ýmsar upplýsingar um skólann. En í dag verður opnaður aðgangur að stundatöflum nemenda í Innu, hjá öllum sem greitt hafa skólagjöldin.
1. Til þess að nálgast töfluna þína ferð þú inn á heimasíðu skólans www.mh.is og til vinstri neðarlega finnur þú lista - Fyrir nemendur þar smellir þú á – Inna.
2. Næst smellir þú á hnapp ofarlega til hægri – Gleymt lykilorð – og slærð inn kennitölu þína og velur skólann af fellilista.
3. Þá færð þú lykilorð og notendanafn sent á netfangið sem skráð var í Innu við innritun. Ef netfang vantar eða það hefur breyst sendir þú póst á mh@mh.is þar sem fram kemur nafn eða kennitala og netfangið. Síðan getur þú reynt að fara inn aftur að einni til tveimur klukkustundum liðnum. Athugaðu að skrifstofan opnar ekki aftur fyrr en 4. janúar svo það er líklegt að þetta verði ekki uppfært fyrr en þá.
4. Þegar þú hefur fengið lykilorð ferð þú aftur á heimasíðu MH og smellir aftur á -Inna - og skráir þig inn. Þá birtist stundataflan þín.
5. Allar athugasemdir við töfluna getur þú rætt við töflusmiði kl. 15 þriðjudaginn 4. janúar, en þá verður hægt að skoða nauðsynlegar breytingar. Með von um að þú nýtir veru þína í skólanum vel og að skólaárið verði ánægjulegt. Kveðja,Stjórnendur



