Skólastjórn MH (sem í reglugerð nefnist skólaráð) er samstarfsvettvangur yfirstjórnar, kennara og nemenda. Í skólastjórn eru rektor, konrektor, áfangastjóri, tveir fulltrúar kennara og tveir fulltrúar nemenda ásamt forseta NFMH. Skólastjórn heldur reglulega fundi á starfstíma skólans og er hlutverk hennar einkum:
- að vera rektor til aðstoðar og ráðgjafar um stjórn skólans,
- að fjalla um starfsáætlun skólans og framkvæmd hennar,
- að fjalla um skólareglur, umgengnishætti í skólanum, vinnu og félagsaðstöðu nemenda,
- að veita umsögn um erindi frá skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendafélagi, einstaklingum, rektor og menntamálaráðuneyti sé þess óskað
- að fjalla um mál sem varða einstaka nemendur. Farið er með slíkt sem trúnaðarmál.