Kennarar eru sérmenntaðir í viðkomandi kennslugrein(um) og hafa leyfisbréf til framhaldsskólakennslu, að frátöldum örfáum stundakennurum sem ráðnir eru sem sérfræðingar til kenna einum námshópi.
Algengasta háskólapróf sem kennarar hafa lokið er meistaragráða og nokkrir (5 haustið 2004) eru með doktorspróf. Kennslureynsla spannar allt frá byrjanda til 40 ára reynslu af skólastarfi og er að meðaltali um 17 ár.
Í ráðningarstefnu skólans segir að auk viðeigandi menntunar sé sóst eftir fólki sem ætla má að hafi til að bera góða samskiptahæfni, sköpunargleði og áhuga á að vinna með ungu fólki.
Menntaskólinn við Hamrahlíð stefnir að því að veita öllu starfsfólki tækifæri til að viðhalda menntun sinni með endur- og símenntun. Starfsfólk skal leitast við að laga sig að síbreytilegum kröfum sem starfið gerir til þeirra.




