Á næstu árum verður lögð sérstök áhersla á
- að höfða til áhugasamra nemenda hvaðanæva að,
- að koma til móts við góða námsmenn,
- að þróa námsleið og stoðkerfi fyrir nýbúa við upphaf náms,
- að efla listnám,
- að vera í forystu um notkun upplýsingatækni í námi, kennslu og stjórnsýslu,
- að nýta dreifnám til að auka námsframboð, tölvulæsi og sjálfstæð vinnubrögð,
- að stuðla að samskiptum sem einkennast af virðingu og náungakærleik,
- að efla ráðgjöf um námsval,
- að bera kennsl á dyslexíu og veita viðkomandi nemendum tiltækan stuðning,
- að auka stuðning og aðhald við öldungadeildarnemendur,
- að standa fyrir virkri og markmiðatengdri endurmenntun,
- að auka við og endurbæta kennslu- og vinnuaðstöðu,
- að efla alhliða forvarnir og heilsuvernd,
- að semja jafnréttisáætlun og hrinda henni í framkvæmd,
- að efla umhverfisvitund ,
- að nýta sjálfsmat í þágu umbóta,
- að auka samstarf við aðra skóla.
Um hvert atriði er til skrifleg áætlun um aðgerðir. Þær áætlanir má líta á sem fylgiskjöl stefnuskrárinnar og tryggingu fyrir framgangi hennar.




