Rammar og tímaviðmið
Valið skal í sjálfsmatsteymið eigi síðar en í nóvember það ár sem starfstími fyrra teymis rennur út.
Heildaráætlun ásamt fullunninni tillögu fyrsta ársins skal lögð fram eigi síðar en 15. febrúar fyrsta starfsárið.Meginstoðir áætlunarinnar eru sem hér greinir:
- Á hverjum þremur árum skal fara a.m.k. einn hring í kennslukönnun (áfangamati).
Önnina á eftir að deild (greinaflokkur) er í mati skal deildarfundur efna til umræðu um niðurstöður og leitast við að taka afstöðu til þeirra eða draga af þeim lærdóm. Greinargerð deildar fer til teymis eða undirhóps. - Á hverjum þremur árum skal fara hring í þjónustukönnun (skrifstofa, námsráðgjöf, bókasafn o.fl.)
Önnina á eftir skal rektor funda um niðurstöður með viðkomandi. - Á hverjum þremur árum skal farinn hringur í starfsmannaviðtölum
- Á hverjum þremur árum skulu yfirstjórnendur undirgangast einhvers konar mat á störfum sínum (Þetta mat getur verið blanda af innra sem ytra mati).
- Á hverju ári skal taka saman tölfræði um valin atriði, hin sömu frá ári til árs. Sjálfsmatsteymi gerir í sinni
árlegu áætlun tillögu um ný atriði ef þurfa þykir.
Tölfræðin skal rædd á fyrirfram skilgreindum vettvangi. - Á hverju ári skal efna til rýnihópa um valin efni (eftir atvikum ólík frá ári til árs) s.s. móttöku nýnema, stundvísi, skólasókn ofl.
- Á hverju ári skal farið yfir formlega ársætlun skólans og metið hvernig til tókst með viðeigandi skýringum
- Á hverju ári skal gera tilteknar fastar kannanir í samræmi við tímaás heildaráætlunar. Um framkvæmd og úrvinnslu fer skv. almennu ferli sem kveður á um einstök atriði s.s. hverjir útbúa könnun, til hverra tekur hún, hvaða gagnavinnsla er áætluð og hvert niðurstöður fara.
- Á hverju ári skulu gerðar breytilegar kannanir (um efni sem eru á döfinni í skólanum) skv. samþykktum sjálfsmatsteymis.




