Menntaskólinn við Hamrahlíð

Ráðgjöf vegna persónulegra erfiðleika er umfangsmikill hluti náms- og starfsráðgjafar. En sterk tengsl eru á milli líðanar nemenda og námsárangurs. Ef

Persónulegir erfiðleikar

Ráðgjöf vegna persónulegra erfiðleika er umfangsmikill hluti náms- og starfsráðgjafar. En sterk tengsl eru á milli líðanar nemenda og námsárangurs. Ef ástæða þykir til vísa náms- og starfsráðgjafar nemendum á sérfræðiaðstoð utan skólans m.a. til heilsugæslulækna, sálfræðinga, geðlækna og félagsþjónustu eða þjónustumiðstöðvar í hverfum. Auk stuðningsviðtala við nemendur er boðið upp á fjölskylduviðtöl með nemendum og forráðamönnum þeirra. 

Erfiðar félagslegar aðstæður nemenda geta verið t.d. skilnaður foreldra, mikill kvíði, prófkvíði, þungun, fóstureyðing, lítið sjálfstraust, þunglyndi, depurð, vinaleysi, einelti, samskiptaerfiðleikar m.a. við foreldra, veikindi ýmiss konar, vímuefnanotkun, sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir.

Stundum gætir misskilnings um eðli þunglyndis sem er ekki merki um dugleysi eða leti, heldur getur lagst á alla án tillits til aldurs eða þjóðfélagsstöðu. Nemendum er einnig bent á hjálparsíma Rauða krossins sem er opinn án endurgjalds allan sólarhringinn S: 1717.

tenglar á heimasíður:      

 

 

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf