Náms- og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður nemenda og aðstoðar þá við lausn persónulegra erfiðleika sem hindra þá í námi.
Nemendur eru aðstoðaðir við að auka skilning sinn á eigin stöðu og möguleikum í námi og starfi.
Nemendur eru einnig hvattir til þess að setja sér markmið og áætlanir sem leiða til aukinnar sjálfsábyrgðar.
Náms- og starfsráðgjafi sinnir fyrirbyggjandi starfi með ýmsum hætti t.d. með því að aðstoða nemendur við að leita sér sérfræðiaðstoðar utan skólans.
Hann safnar og miðlar upplýsingum um nám og störf, fræðir um námstækni og sinnir tengslum við önnur skólastig.
Sérstakur náms- og starfsráðgjafi sér um málefni fatlaðra við skólann og boðið er upp á ýmsa sérþjónustu við fatlaða nemendur sem hyggja á stúdentspróf.