Námserfiðleikar eru af ýmsum toga má þar nefna skort á skipulagningu, neikvætt viðhorf til skólastarfsins sem kemur gjarnan fram í áhugaleysi og lélegum mætingum, ýmsa persónulega erfiðleika sem hafa áhrif á einbeitingu nemenda við námið auk ýmissa sértækra námserfiðleika eins og t.d. lesblindu, leshömlun, talnablindu/ stærðfræðierfiðleika o.fl. Sjá nánari upplýsingar og/eða tengla hér fyrir neðan:
Lesblinda (dyslexia) Náms- og starfsráðgjafar hafa bent nemendum, sem eiga við lestrar- og/eða stafsetningaörðugleika að etja og þess hafa óskað, á ýmsa staði (t.d. sálfræðinga og sérkennara) til að fara í greiningu. Nemendur hafa ýmist komið af sjálfdáðum eða kennarar og þá einkum íslenskukennarar hafa bent þessum nemendum á að leita sér greiningar og aðstoðar þar sem erfiðleikar hafa komið fram í námi. Hópur nemenda hefur ekki fengið ákveðna greiningu um leshömlun/lesblindu fyrr en í MH. Lesblindir nemendur taka sérkennsluáfanga í íslenskri stafsetningu sem venjulega er í boði á hverri vorönn.
Vefsíður tengdar lesblindu/dyslexiu:
Félag lesblindra Námsgagnastofnun Blindrabókasafn Íslands, hljóðbókasafn Réttritun Lesvefur KHÍ lestrarmiðstöðin http://www.lestur.is/
Stærðfræðierfiðleikar (Dyscalculia)
Margir nemendur eiga í erfiðleikum með stærðfræði sem nýlega er farið að greina sem dyscalculiu. Upplýsingar um Dyscalculiu
ADHD og ofvirkni Athyglisbrestur og ofvirkni, oft kallað ADHD í daglegu tali, er taugaþroskaröskun sem kemur yfirleitt snemma fram eða fyrir 7 ára aldur og getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun. Athyglisbrestur og ofvirkni er algerlega óháð greind. ADHD er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir “Attention Deficit Hyperactivity Disorder” eða athyglisbrest og ofvirkni. Einnig er til greining um athyglisbrest án ofvirkni sem skammstafað er ADD og er stundum kallað vanvirkni. Heimasíða ADHD samtakanna Vísbendingar um ADHD hjá ungu fólki
Nemendur með annað móðurmál en íslensku
Reglugerð nr. 654/2009 um rétt nemenda í framhaldsskólum til kennslu í íslensku kveður á um réttindi nemenda í framhaldsskólum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, eða hafa dvalist langdvölum erlendis og hafa litla kunnáttu í íslensku. Boðið er upp á námsver í MH fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Þar starfa tveir sérkennarar sem aðstoða nemendur.




