Veittar eru upplýsingar um nám og námsleiðir í MH, öðrum skólum og ráðgjöf vegna vals á námi og starfi en margir nemendur eru tvístígandi um hvaða nám og/eða starf henti þeim og hvernig nám og störf tengjast.
Áhugasvið nemenda skiptir miklu máli varðandi náms- og starfsval og geta nemendur tekið áhugasviðspróf.
Nemendum stendur til boða að taka STRONG/BENDILS áhugasviðskönnun/próf í Lífsleikniáfanganun LÍL121 (sem tekinn er á síðustu önninni). Með því að taka slíka könnun/próf er hægt að kanna og skipulega ýmsa möguleika á náms- og starfsvali með hliðsjón af áhugasviði viðkomandi.




