Menntaskólinn við Hamrahlíð

MH sem vinnustaður Markmið jafnréttisstefnu MH er að tryggja að konur og karlar njóti jafnréttis og að starfsfólk sé metið að verðleikum og sýni hvert

MH sem vinnustaður

MH sem vinnustaður
Markmið jafnréttisstefnu MH er að tryggja að konur og karlar njóti jafnréttis og að starfsfólk sé metið að verðleikum og sýni hvert öðru virðingu í samskiptum.

Allar mikilvægar ákvarðanir sem varða starfsfólk skulu metnar frá jafnréttissjónarmiði. Þau atriði sem jafnréttisstefna MH tekur sérstaklega til eru:

  • Ráðningar

  • Launakjör

  • Starfsaðstæður

  • Endurmenntun og starfsþróun

  • Samræming fjölskyldulífs og vinnu

  • Einelti og kynferðisleg áreitni

Telji starfsmaður að jafnrétti sé brotið í MH skal hann leita til trúnaðarmanns eða konrektors sem í sameiningu finna hverju máli farveg.
headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf