Leggja skal áherslu á jafnréttissjónarmið í allri kennslu í skólanum.
Jafnréttismiðuð kennsla gerir þá kröfu til kennara og annarra starfsmanna skólans að þeir haldi vöku sinni í jafnréttismálum.
Jafnréttismiðuð kennsla felur meðal annars í sér að
Nemendur skulu fá fræðslu um jafnrétti kynjanna. Í þeirri fræðslu skal leggja áherslu á styrkleika beggja kynja, skyldur beggja og réttindi.
Mikilvægt er að nemendur af báðum kynjum komi fram fyrir hönd skólans.
Telji nemandi að jafnrétti sé brotið í MH skal hann leita til námsráðgjafa eða áfangastjóra sem í sameiningu finna hverju máli farveg.




