Menntaskólinn við Hamrahlíð stefnir að því að veita öllu starfsfólki tækifæri til að viðhalda menntun sinni með endur – og símenntun.
Starfsfólk skal leitast við að laga sig að síbreytilegum kröfum sem starfið gerir til þeirra.
Starfsfólk getur sótt um styrki til endurmenntunar í endurmenntunarsjóð MH. Hlutverk sjóðsins er einkum að greiða kostnað af námskeiðum sem skólinn gengst fyrir innanhúss, að greiða fyrir námskeið/ráðstefnur sem skólinn óskar að einstaklingar sæki (að því marki sem aðrir styrkir hrökkva ekki til) og að greiða fyrir námskeið/ráðstefnur sem starfsmaður sækir sérstaklega um að verði styrkt (eftir því sem hægt er).
Reglur endumenntunarsjóðs eru birtar í handbók.
Stjórn sjóðsins er skipuð Ásdísi Hafstað, Pálma Magnússyni og Sigurborgu Matthíasdóttur.




