Kærar þakkir fyrir komuna!

Kærar þakkir fyrir komuna! Foreldrar og forráðamenn nýnema fjölmenntu á kynningarkvöld hér í MH síðastliðið fimmtudagskvöld. Eftir að hafa hlýtt á ávörp

Kærar þakkir fyrir komuna!

Áshildur Arnarsdóttir flytur ávarp
Áshildur Arnarsdóttir flytur ávarp

Foreldrar og forráðamenn nýnema fjölmenntu á kynningarkvöld hér í MH síðastliðið fimmtudagskvöld. Eftir að hafa hlýtt á ávörp Lárusar H. Bjarnasonar rektors og Áshildar Arnarsdóttur hjúkrunarfræðings, forvarnarfulltrúa og verkefnisstjóra MH í heilsueflandi framhaldsskóla fengu gestir að njóta söngs Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð. Svo var farið í kennslustofur með umsjónarkennurum, fræðst um kerfið hér í MH og skipst á skoðunum.

Að öllu þessu loknu var sameinast í kafffi og kökum á Miðgarði. Hlaðborðið sem kórinn bauð upp á var eins og í almennilegri fermingarveislu og með góðgæti á diski og kaffi í bolla urðu umræður fjörugar og skemmtilegar. Kærar þakkir til allra sem komu og gerðu kvöldið fræðandi og skemmtilegt.



headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf