Foreldraráð MH heldur aðal- og fræðslufund í MH 25. október kl 19:30

Foreldraráð MH heldur aðal- og fræðslufund í MH 25. október kl 19:30 Frá stjórn Foreldraráðs MH: Foreldraráð MH heldur aðalfund og fræðslufund í

Foreldraráð MH heldur aðal- og fræðslufund í MH 25. október kl 19:30

Frá stjórn Foreldraráðs MH:

Foreldraráð MH heldur aðalfund og fræðslufund í húsakynnum skólans þriðjudaginn 25. október kl 19:30. Á dagskrá eru m.a. venjuleg aðalfundarstörf, umræður um þátt foreldraráðs í verkefninu  MH Heilsueflandi framhaldsskóli og tveir stuttir fyrirlestrar um vímuefnavarnir. Kaffiveitingar í boði skólans.

Núverandi formaður Foreldraráðs, Viðar Ágústsson...

gefur kost á sér til áframhaldandi starfa en áhugasamir foreldrar um störf með Foreldraráði eru beðnir um að senda tölvubréf til vidara@islandia.is.

Ennfremur verður fjallað um stefnu Foreldraráðs til styrktar þátttöku MH í verkefninu "Heilsueflandi framhaldsskóli" og samvinnu í samræmi við bréf MH í mars síðastliðnum til Menntamálaráðuneytis um vímuvarnastefnu.

Stjórn Foreldraráðs hefur sérstakan áhuga á að koma á fót gæsluhópi sem getur staðið vaktina utandyra meðan nemendur bíða í röðum eftir að komast inn á skólaball. Þeir foreldrar sem geta hugsað sér að vera í gæsluhópnum eru beðnir um að senda tölvubréf til vidara@islandia.is.

Á fundinum verða kaffiveitingar í boði skólans og tveir stuttir fyrirlestrar um vímuefnavarnir ásamt umræðum á eftir verða haldnir á aðalfundinum til að fræða foreldra um forvarnir við fíkniefnaneyslu nemenda ásamt einkennum og viðbrögðum við fíkniefnaneyslu.

Stjórn Foreldraráðs MH

 



headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf