Til þess að hefja nám á brautum til íslensks stúdentsprófs í MH þarf nemandi af hafa lokið grunnskólanámi á fullnægjandi hátt að mati grunnskóla. Uppfylla þarf lágmarksskilyrði um lokaeinkunnir og annað sem fram kemur í eftirfarandi töflum:
Listdansbraut til stúdentsprófs
Yfirlit yfir lágmarkseinkunnir brauta
IB braut
Til að hefja nám til hins alþjóðlega stúdentsprófs þarf nemandi hafa námsferil úr íslenskum og/eða erlendum skóla sem gefur til kynna að hann/hún sé hæf(ur) til að takast á krefjandi nám á skemmri tíma en algengast er í framhaldsskólum. Auk þess er góð enskukunnátta grundvallarskilyrði. Gert er ráð fyrir að umsækjendur um nám á IB braut fari í viðtal til stjórnanda brautarinnar (IB stallara) áður sótt er um.
Eyðublöð vegna umsóknar um nám á IB brautinni má finna með því að smella á IB STUDIES á stikunni hér fyrir ofan.
Athugið að auk þess að fylla út umsóknareyðublöð og skila inn meðmælum þarf að sækja um það nám
rafrænt eins og annað nám í dagskóla (sbr. hér að ofan).



