Skólinn

Menntaskóli

Velkomin(n) á heimasíðu MH

Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966. Markmið skólans er velgengni brautskráðra nemenda og að skólinn sé fyrirmynd um framsækna kennslu, góða stjórnsýslu og rækt við menningu og listir.

Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:30 - 11:50 og 12:20 - 15:30 virka daga.

Fréttir

Innritun í Öldungadeildina/kvöldskólann stendur yfir

Innritun í seinni lotuna stendur yfir. Smellið hér til að innrita ykkur.

Kennsla seinni lotu hefst skv. stundaskrá mánudaginn 5. mars.

Til að fá betri mynd af lotunum, þá skoðið stundatöfluna á vefnum þar sem búið er að skipta áföngunum á sitthvora lotuna. Sjá stundatöflu einnig hér.

Athugið að skráning í Öldungadeildina tekur ekki gildi fyrr en skólagjöldin hafa verið greidd.

Lesa meira

Lagningardagar 15. - 17. febrúar - Open days

Lagningardagar verða hér í MH 15. – 17. febrúar. Þá fellur niður hefðbundin kennsla og ýmsir skemmtilegir viðburðir verða, s.s. fyrirlestrar, námskeið og skapandi starf. Nemendur þurfa að mæta í skólann þessa daga samkvæmt eftirfarandi fyrirkomulagi:

Open days with lectures, workshops, music, dance, drawing, drama and more. Attendance during Lagningardagar (15th, 16th and 17th of February):

Lesa meira

Hamrahlíðarkórinn á Myrkum músíkdögum

Myrkir músíkdagar hafa verið mikilvægasti vettvangurinn fyrir framsækna
nútímatónlist á Íslandi allt frá stofnum hátíðarinnar árið 1980.
Hamrahlíðarkórnum hefur verið falið að halda tónleika á hátíðinni 12 sinnum,
í fyrsta skipti árið 1983.

Tónleikar kórsins á Myrkum músíkdögum í ár verða á sunnudag,
29. janúar kl. 15 í Háteigskirkju.

Kórinn frumflytur m.a. nýtt verk eftir Kolbein Bjarnason
við ljóð
Egils Skallagrímssonar og er tónverkið tileinkað kórnum.

Á efnisskránni eru auk þess verk eftir þrjú önnur íslensk samtímatónskáld, Lesa meira

Nú eiga öll stúdentsefni vorsins að vera búin að tilkynna útskrift

Allir nemendur sem hyggja á útskrift vorið 2012 verða að mæta til áfangastjóra eða konrektors fyrir lok fimmtudagsins 19. janúar 2012.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn
moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf