Námsfyrirkomulag

Við Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð hefur verið ákveðið að taka upp nýtt námsfyrirkomulag. Önninni hefur verið skipt upp í tvær 7. vikna

Námsfyrirkomulag og áfangaframboð

Við Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð hefur verið ákveðið að taka upp nýtt námsfyrirkomulag. Önninni hefur verið skipt upp í tvær 7. vikna kennslulotur.

Fyrri lotan er frá 5. janúar – 27. febrúar, þá verða lokapróf úr áföngum fyrri lotunnar dagana 28. febrúar. til og með 2. mars.

Seinni lotan hefst svo 5. mars og stendur til og með 2. maí. Lokapróf úr áföngum seinni lotunnar verða þá dagana 3. til og með 8. maí.

Kennt verður samkvæmt stundatöflu tvisvar í viku, í einn stuttan tíma (1klst) og einn langan tíma (2 klst).

Helsti ávinningur með lotukerfinu:

Náminu er flýtt um helming, það verður meiri samfella í náminu og nemendur geta einbeitt sér að færri námsgreinum í einu.

Áfangar fyrri lotunnar, 5. janúar - 27. febrúar eru: FÉL113, HEI103, SÁL203, SAG303, ÍSL503, STÆ403, SPÆ303, ÞÝS103, DAN103, ENS403, NÁT133, ÍTA303

Áfangar seinni lotunnar, 5. mars - 2. maí eru: ENS503, FÉL233, LAN103, SÁL333, ÍTA403, STÆ313, STÆ503, SPÆ403, ÞÝS203, DAN203, ÍSL403, SAG3H3

Aðrir áfangar sem eru tilgreindir á stundatöflunni eru ekki kenndir í lotum.

Deildarstjóri Öldungadeildar  

 

 

 

 

 

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf