Skólasóknareinkunn

Gefin er einkunn fyrir skólasókn á hverri önn. Einkunnin ákvarđast bćđi af tímasókn og stundvísi og er fjarvist úr kennslustund metin til jafns viđ ađ

Skólasóknareinkunn

Gefin er einkunn fyrir skólasókn á hverri önn. Einkunnin ákvarðast bæði af tímasókn og stundvísi og er fjarvist úr kennslustund metin til jafns við að koma þrisvar of seint.

Skólasóknareinkunn er gefin sem hér segir eftir að tekið hefur verið tillit til veikinda og/eða leyfa:

Einkunn 10 95-100% skólasókn

Einkunn 9 92-94% skólasókn

Einkunn 8 89-91% skólasókn

Einkunn 7 86-88% skólasókn

Einkunn 6 83-85% skólasókn

Einkunn 5 80-82% skólasókn

Einkunn 3 minna en 80% skólasókn, nemandinn er fallinn á önn og fær ekki að þreyta lokapróf.

Til þess að halda áfram námi við skólann þarf nemandi að fá minnst 5 í skólasókn á hverri önn og minnst 6,5 að meðaltali eftir hvert skólaár.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf