Stöđupróf

Stöđupróf á vegum menntamálaráđuneytisins eru haldin í Menntaskólanum viđ Hamrahlíđ í ágúst og desember á hverju ári. Prófin eru haldin tvisvar á ári í

Stöđupróf

Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins eru haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í ágúst og desember á hverju ári. Prófin eru haldin tvisvar á ári í eftirtöldum greinum: Dönsku, ensku, frönsku, norsku, spænsku, sænsku, þýsku og byrjunaráföngum í stærðfræði. Auk þess hafa verið haldin stöðupróf í  albönsku, grísku, hollensku, ítölsku, japönsku, kínversku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, tælensku og víetnömsku. Próf í þessum tungumálum eða öðrum greinum eru einungis haldin ef beðið er um slíkt með góðum fyrirvara og næg þátttaka fæst.

Fyrirhuguð stöðupróf eru auglýst á heimasíðu skólans að vori (vegna ágústprófa) og að hausti (vegna desemberprófa). Prófin eru einnig auglýst í dagblöðum með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Skráð er í stöðupróf á heimasíðu skólans. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 595-5200.  

Í Aðalnámskrá framhaldsskóla er tekið fram að þessi próf séu ætluð þeim sem búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur álit menntamálaráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemendur sem fallið hafa á annar eða bekkjarprófi.

Ágúst 2010 Skráning hefst í lok maí

Desember 2010 Skráning hefst í október

Skráning 

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf