Próf eru haldin við lok hverrar annar. Prófdagar eru tíu og er námsgreinum er skipt í 10 flokka sem sýna í hvaða greinum er prófað sama dag.
A. Íslenska, bókmenntir, íslenskt táknmál. B. Eðlisfræði (EÐL og NÁT133), franska,
líkamsrækt. C. Enska, heimspeki. D. Líffræði (LÍF og NÁT103), félagsfræði. E.
Þýska, hagfræði (ÞJÓ), rússneska, gríska. F. Stærðfræði. G. Saga. H.
Jarðfræði (JAR og NÁT113), landafræði, latína, lögfræði, spænska. I. Danska og sálfræði.
J. Efnafræði (EFN og NÁT123), esperanto, ítalska, japanska, kínverska, uppeldisfræði, stjörnufræði. Prófdagur
í norsku og sænsku er fyrsta laugardag prófatímabils (vegna nemenda annarra skóla).
Röð prófdaga færist til eftir ákveðinni reglu og er ákveðin hverju sinni og auglýst fyrir lok næstu annar á undan.




