Námsval

Fyrsta önnin Á fyrstu önn nemandans er hann/hún sett(ur) í byrjunaráfanga í samrćmi viđ val hans/hennar á námsbraut og ađrar upplýsingar sem hann/hún

Námsval

Fyrsta önnin
Á fyrstu önn nemandans er hann/hún sett(ur) í byrjunaráfanga í samræmi við val hans/hennar á námsbraut og aðrar upplýsingar sem hann/hún hefur gefið í umsókn um skólavist.

Námsval nemenda á hverri önn takmarkast einkum af þrennu:

1. Undanfarareglum

2. Brautarkjarna og kjörsviði

3. Áföngum í boði.

Ábendingar um námsval eftir 1.önn
 

P-áfangar

Nemendum getur gefist kostur á svonefndum P – áföngum, þ.e. áföngum sem þreytt er próf í án þess að sækja reglulega kennslu. Fyrir slíku námi eru eftirfarandi skilyrði:

a) Nemandi, sem á síðastliðinni önn hefur hlotið einkunnina 8, 9 eða 10 í sex einingum hið minnsta að frádregnum þeim einingum sem hann/hún hefur hlotið einkunnina 1, 2 eða 3 fyrir, getur sótt m leyfi til að stunda nám í P – áföngum.

b) Nemandi sem stundar nám á síðustu ( á ólokið í mesta lagi 24 ein.) eða næstsíðustu önn ( á ólokið í mesta lagi 45 ein.) getur einnig sótt um slíkt leyfi. Leyfið takmarkast við einn áfanga á næstsíðustu önn og tvo á síðustu önn nemandans í skólanum. Allt P – nám er háð samþykki áfangastjóra og fagstjóra í viðkomandi grein.

c) P-nemendur skulu hafa samband við fagstjóra í upphafi annar, þ. e. innan frests sem auglýstur er hverju sinni, og standa skil á verkefnum á sama tíma og aðrir nemendur.

d) Samþykktir P- áfangar birtast í Innu og á námsnetinu.

Eftir að nemendur fá stundatöflu afhenta gefst þeim kostur á að bæta við sig áföngum í töflugöt hafi námsárangur þeirra og ástundun verið mjög góð önnina á undan.
headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf