IB nemar

IB nemar eru bundnir af námsmatsreglum IB samtakanna, almennum reglum um skólasókn og námsframvindu svo og eftirfarandi sérreglum: •Nemandi á

IB nemar

IB nemar eru bundnir af námsmatsreglum IB samtakanna, almennum reglum um skólasókn og námsframvindu svo og eftirfarandi sérreglum:

•Nemandi á undirbúningsári (Pre IB) þarf að ná lágmarksárangri í öllum námsgreinum skólaársins til þess að öðlast fortakslausan rétt á að hefja nám á hinni formlegu IB braut.

•Falli nemandi í einni og aðeins einni námsgrein í lok undirbúningsársins (þ.e á vorönn) verður mál hans metið sérstaklega í samráði við IB-stallara.

•Falli nemandi í tveimur eða fleiri námsgreinum í lok undirbúningsársins verður honum synjað um af hefja nám á IB braut. Umsókn slíks nemanda um nám á öðrum brautum hefur ekki forgang framyfir umsóknir nemenda úr öðrum framhaldsskólum.

•Skilyrði þess að flytjast milli anna IB-námsins er að hafa náð einkunninni 5 í öllum námsgreinum viðkomandi annar nema í hæsta lagi einni.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf