Bóknámsbrautir, eldri n.

Í skólanum er bođiđ upp á breiđa almenna menntun á ţremur bóknámsbrautum: Málabraut, náttúrufrćđibraut, og félagsfrćđabraut. Til ađ öđlast stúdentspróf

Bóknámsbrautir, eldri n.

Í skólanum er boðið upp á breiða almenna menntun á þremur bóknámsbrautum: Málabraut, náttúrufræðibraut, og félagsfræðabraut. Til að öðlast stúdentspróf frá þessum þremur brautum þarf nemandi að ljúka 140 námseiningum, þar af 8 einingum í líkamsrækt. Nemendur sem útskrifast eftir nám í öldungadeild eru undanþegnir líkamsrækt og ljúka því 132 einingum.

Námið á hverri braut skiptist í: Kjarna (98 einingar), Kjörsvið (30 einingar) og Frjálst val (12 einingar). Samtals 140 einingar

Samaburður og yfirlit yfir brautarkjarnana þrjá 

Félagsfræðabraut - uppbygging brautar       

  • Á þessari braut er samfélagsgreinum skipað í öndvegi. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Brautin er heppilegur undirbúningur undir margs konar nám í háskóla að undanskildum raunvísindum og verkfræði.

Málabraut - uppbygging brautar

  • Brautin veitir m.a. staðgóða þekkingu á ensku og tveimur öðrum nútímamálum samkvæmt vali skólans og nemandans. Brautin er um leið heppilegur undirbúningur hvers konar málanáms á háskólastigi. Einnig hentar þetta nám sem undirbúningur háskólanáms þar sem sérstaklega reynir á kunnáttu í ensku eða öðrum nútímamálum svo sem náms í ýmsum greinum félagsvísinda, heimspeki, almennri bókmenntafræði o.fl. Námið hentar ekki sem undirbúningur undir nám í raunvísindum eða verkfræði.

Náttúrufræðibraut - uppbygging brautar

  • Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í raunvísindum (s.s. líffræði, efnafræði og eðlisfræði), stærðfræði og verkfræði. Brautin veitir m.a. undirstöðuþekkingu í náttúruvísindum og er góður undirbúningur undir nám í heilbrigðisgreinum og landbúnaðarfræðum.
headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf