Breyttar námsbrautir til stúdentsprófs fyrir nemendur úr grunnskóla sem innritast frá og með hausti 2012. Nánari upplýsingar hér.
Opin braut, ný námskrá
Brautin býr nemendur undir mismunandi nám á háskólastigi allt eftir samsetningu nemandans sem velur þrjár til fjórar kjörgreinar og lýkur samtals 45 einingum í þeim. Þetta nám er viðbót við grunninn. Fyrsta kjörgrein þarf að vera a.m.k. 15 einingar umfram kjarnaeiningar, önnur og þriðja kjörgrein a.m.k. 9 einingar umfram kjarna. Auk þess velur nemandi annað hvort fjórðu kjörgrein með a.m.k. 9 einingum umfram kjarnaeiningar eða bætir við sig einingum í fyrstu til þriðju kjörgrein. Úr þessum greinum myndar nemandinn sína eigin fléttu. Við val á kjörgreinum þarf að hafa í huga skilyrði um lágmarksfjölda eininga á öðru og þriðja hæfniþrepi.Félagsfræðabraut, ný námskrá
Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Brautin er heppilegur undirbúningur undir margs konar nám í háskóla að undanskildum raunvísindum og verkfræði.Málabraut, ný námskrá
Brautin veitir m.a. staðgóða þekkingu á ensku og tveimur öðrum nútímamálum samkvæmt vali skólans og nemandans. Brautin er um leið heppilegur undirbúningur hvers konar málanáms á háskólastigi. Einnig hentar þetta nám sem undirbúningur háskólanáms þar sem sérstaklega reynir á kunnáttu í ensku eða öðrum nútímamálum svo sem náms í ýmsum greinum félagsvísinda, heimspeki, bókmenntafræði og málfræði. Námið hentar ekki sem undirbúningur undir nám í raunvísindum eða verkfræði.Náttúrufræðibraut, ný námskrá
Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í raunvísindum (s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði), stærðfræði og verkfræði. Brautin veitir m.a. undirstöðuþekkingu í náttúruvísindum og er góður undirbúningur undir nám í heilbrigðisgreinum og landbúnaðarfræðum.
Aðrar námsbrautir
IB nám
MH er aðildarskóli að IBO (International Baccalaureate Organisation), alþjóðasamtökum 1000 skóla í yfir 100 löndum. Skólinn býður upp á IB nám, krefjandi bóklegt nám sem lýkur með samræmdu prófi. Það veitir svipuð réttindi til framhaldsnáms og íslenska stúdentsprófið þótt það sé í ýmsu frábrugðið. Námið tekur tvö ár að loknu undirbúningsári í framhaldsskóla og kennt er og prófað að mestu á ensku. Námið er skipulagt í áföngum og öðrum nemendum MH býðst að sækja staka IB áfanga og fá þá metna inn í hefðbundið stúdentspróf.
Listdansbraut til stúdentsprófs
Með námi á listdansbraut er lagður góður grunnur að framhaldsnámi í listdansi. Ennfremur getur brautin nýst sem undirbúningur fyrir fjölmargt annað nám á háskólastigi. Danshluti námsins fer fram utan við MH skv. þjónustusamningi við sérskóla. Að jafnaði stundar nemandi því bæði bóklegt og verklegt nám samtímis. Nemandi velur annaðhvort klassískan listdans eða nútímalistdans.
Námsbraut sem lýkur með lokaskírteini
Sérnámsbraut
Sérnámsbraut skólans er fyrir nemendur sem notið hafa verulegrar sérkennslu í grunnskóla og þurfa einstaklingsmiðað nám. Nemendum er að miklu leyti kennt í sérdeild en þar sem því verður við komið sækja þeir nám á aðrar brautir í einstökum fögum. Mikið er lagt upp úr að brautin sé hluti af skólaheildinni. MH er heilsueflandi skóli og því er lögð áhersla á kennslu í heilsutengdum lífsstíl. Einnig er lögð rækt við menningu og listir og nemendur fá að upplifa það sem efst er á baugi í menningarlífinu í samfélaginu hverju sinni. Kennslan er byggð á námsáætlun fyrir nemendahóp eða einstakling og er hún unnin út frá markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla, ásamt upplýsingum um þarfir nemenda og mati á stöðu þeirra í námi og þroska. Kenndar eru 20 klukkustundir á viku þ.e. 30 kennslustundir. Nemendum býðst að stunda nám í fjögur ár og útskrifast þau með lokaskírteini um námsferil sinn frá sérnámsbraut. Forsenda fyrir inntöku nemanda á sérnámsbrautina er að greining sérfræðinga fylgi umsókn.
Námsbrautir eldri námskrár
Félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut
Til að öðlast stúdentspróf frá MH þarf nemandi að ljúka 140 námseiningum af einhverri bóknámsbrautanna þriggja; félagsfræðabraut, málabraut eða náttúrufræðibraut. Námið á hverri braut skiptist í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Námið í kjarna er að miklu leyti sameiginlegt fyrir allar brautirnar. Nám á kjörsviði nemur samtals 30 einingum og felur í sér sérhæfingu á viðkomandi námssviði í samræmi við lokamarkmið brautarinnar. Frjálsa valið er 12 einingar og gefur það nemanda möguleika á að kynna sér nýjar námsgreinar eða dýpka kjörsvið sitt.




