Í skólanum er boðið upp á breiða almenna menntun á þremur 140 eininga bóknámsbrautum, málabraut, náttúrufræðibraut og félagsfræðabraut. Nemendur Öldungadeildar eru undanþegnir líkamsrækt og ljúka því 132 einingum bóklegum einingum.
Þeir nemendur sem stunda listdansnám, við viðurkennda listdansskóla á framhaldsskólastigi, geta lokið 132 eininga námi á listdansbraut til stúdentsprófs frá og með hausti 2006.
Við skólann er einnig starfrækt IB deild og þaðan ljúka nemendur samræmdu alþjóðlegu stúdentsprófi að loknu þriggja ára námi á framhaldsskólastigi.




