Áfangaheiti

Áfangaheiti er ţrír bókstafir (venjulega ţrír fyrstu stafir í greinarheitinu) og fjögurra stafa tala. Fyrsti tölustafur segir til um röđ áfanga innan

Áfangaheiti

Áfangaheiti er þrír bókstafir (venjulega þrír fyrstu stafir í greinarheitinu) og fjögurra stafa tala. Fyrsti tölustafur segir til um röð áfanga innan greinarinnar (1, 2, 3 o.s.frv.). Næsti tölustafur greinir hliðstæða áfanga hvern frá öðrum. Þriðji tölustafur í áfangaheitinu segir til um einingafjölda áfangans (oftast 2 eða 3). Fjórði tölustafur segir til um fjölda kennslustunda á viku (miðað er við fjörutíu mínútna kennslustundir) og er þá samkvæmt framansögðu venjulega tvöfaldur einingafjöldinn. Nú er það hins vegar svo að hver kennslustund í MH er klukkustund að lengd og flestir áfangar eru þrjár einingar. Þriggja eininga áfangi er að jafnaði kenndur í tveimur klukkustundartímum, einum tíma sem er ein og hálf klukkustund og opnum klukkutíma stoðtíma á miðvikudögum, nema að um hraðferð eða hægferð sé að ræða.

Út úr áfangaheitinu ENS1036 má þá lesa að þetta sé fyrsti áfangi í ensku, gefi þrjár einingar og sé kenndur á fjórum klukkustundum á viku sem jafngilda sex fjörutíu mínútna kennslustundum. Áfangaheitið ENS1034 hefur sömu merkingu að öðru leyti en því að sá áfangi er hraðferð og kenndur á færri klukkustundum á viku. Hliðstætt gildir um ENS1038, sá áfangi er hægferð og því kenndur á fleiri klukkustundum á viku.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf