Annirnar eru tvær; haustönn hefst s.hl. ágústmánaðar ár hvert og henni lýkur með prófum fyrir jól, vorönn hefst snemma í janúar og henni lýkur með prófum í maí.
Kennt er í 14-15 vikur á hvorri önn. Annirnar eru eitt af undirstöðuhugtökum áfangakerfisins, námskipulags sem skólinn hefur starfað eftir frá 1972.
Í heild er skólaárið níu mánuðir og hefst á bilinu 22. – 25. ágúst ár hvert og varir til jafnlengdar í maí næsta almanaksár.
Jólaleyfi er frá 21. desember til 3. janúar.
Páskaleyfi er frá mánudegi í dymbilviku til þriðjudags á eftir öðrum páskadegi, þ.e. skóli hefst á miðvikudegi eftir páska.
Stúdentar eru brautskráðir tvisvar á ári, í desember við lok haustannar og í maí í lok vorannar.




