Meginregla
- Nemendur skulu mæta stundvíslega í allar kennslustundir, próf og á staðfestingardegi nema lögmæt forföll hamli.
Veikindi
- Ætlast er til þess að nemendur geri kennurum sínum grein fyrir veikindum og öðrum fjarvistum er þeir mæta næst í tíma.
- Ef veikindi vara í tvo daga eða lengur og eru vottuð af lækni telst aðeins helmingur viðkomandi fjarvistarstiga með til útreiknings á skólasóknareinkunn.
- Skilyrði er að læknisvottorði sé skilað á skrifstofu innan fimm skóladaga eftir að veikindum lýkur.
- Ef samanlögð veikindi á einni önn fara fram yfir 15 skóladaga ber nemanda að gera umsjónarkennara eða námsráðgjafa grein fyrir aðstæðum sínum.
- Fjarvistir vegna veikinda útiloka ekki einar og sér nemanda frá því að þreyta lokapróf.
Skólasóknareinkunn
Gefin er einkunn fyrir skólasókn á hverri önn. Einkunnin ákvarðast bæði af tímasókn og stundvísi og er fjarvist úr kennslustund metin til jafns við að koma þrisvar of seint.
Skólasóknareinkunn er gefin sem hér segir eftir að tekið hefur verið tillit til veikinda og/eða leyfa:
- Einkunn 10 95-100% skólasókn
- Einkunn 9 92-94% skólasókn
- Einkunn 8 89-91% skólasókn
- Einkunn 7 86-88% skólasókn
- Einkunn 6 83-85% skólasókn
- Einkunn 5 80-82% skólasókn
- Einkunn 3 minna en 80% skólasókn, nemandinn er fallinn á önn og fær ekki að þreyta lokapróf.
Framhaldseinkunn
Til þess að halda áfram námi við skólann þarf nemandi að fá minnst 5 í skólasókn á hverri önn og minnst 6,5
að meðaltali eftir hvert skólaár.
Leyfi
Afreksíþróttafólk getur sótt um að fjarvera þess á námstíma vegna keppnisferða og/eða æfingabúða landsliðs í viðkomandi íþróttagrein reiknist ekki inn í skólasóknareinkunn. Sama getur gilt um afreksfólk á öðrum sviðum.
Sækja þarf skriflega um slíkt leyfi.
Sérreglur
Deildir hafa heimild til að setja sérstök ákvæði um mætingu og aðra ástundun. Slík ákvæði skulu tilgreind í kennsluáætlunum einstakra áfanga.
Brot á slíkum ákvæðum jafngilda falli í viðkomandi áfanga.




