1. Nemendur skulu mæta stundvíslega í próf og taka aðeins með sér þau gögn sem heimil eru. Á verkefnablaði eru tiltekin þau gögn sem leyfilegt er að nota.
2. Nemendum er skylt að láta persónuskilríki liggja á borði meðan á prófi stendur.
3. Alger þögn skal ríkja í prófsal. Þarfnist nemandi leiðbeiningar skal hann rétta upp hönd og bera upp erindi við kennara.
4. Bannað er að hafa farsíma meðferðis í próf.
5. Hvorki má þiggja né veita öðrum aðstoð við lausn prófverkefna.
6. Nemendum er óheimilt að víkja úr sæti fyrr en próftíma er lokið og öllum verkefnum í sal hefur verið safnað saman. Hafi nemandi rangt við í prófi skal honum/henni vísað úr prófsal og prófið ógilt. Brot á prófreglum geta valdið brottrekstri úr skóla.
Frávik
Fatlaðir nemendur, langveikir nemendur og nemendur með staðfesta skynjunarörðugleika geta sótt til námsráðgjafa um frávik frá hefðbundnu námsmati. Um getur verið að ræða eftir atvikum lengri próftíma, sérstök hjálpartæki, aðstoð við skrift, munnlegt próf í stað skriflegs o.fl.
Endurtektarpróf
Stúdentsefni sem hefur náð öllum prófum nema einu á rétt á að gangast undir endurtektarpróf í falláfanganum.
Prófsýning
Á staðfestingardegi í lok annar er prófsýning þar sem próf liggja frammi hjá deildarstjórum og kennurum í öllum námsgreinum. Á prófsýningu eiga nemendur rétt á að skoða prófúrlausnir sínar og geta leitað skýringa á fyrirgjöf.
Varðveisla prófúrlausna
Skólanum ber að varðveita prófúrlausnir í eitt ár og eyða þeim síðan. Innan þessa tíma á próftaki rétt á að fá ljósrit af úrlausn sinni. Sækja þarf skriflega um slíkt á skrifstofu skólans og greiða gjald fyrir. Ennfremur er mögulegt að fá ljósrit af eldri prófverkefnum.