Menntaskólinn við Hamrahlíð

Áður en kennslu hverrar annar lýkur velja nemendur áfanga fyrir næstu önn. Á grundvelli þess er síðan endanlega ákveðið hvaða áfangar verða í boði á

Val og staðfesting á vali

Áður en kennslu hverrar annar lýkur velja nemendur áfanga fyrir næstu önn. Á grundvelli þess er síðan endanlega ákveðið hvaða áfangar verða í boði á önninni.

Aðalval nefnast þeir áfangar sem nemandi kýs helst að stunda á næstu önn en einnig er nauðsynlegt að velja áfanga til vara. Stundum reynist nauðsynlegt að víkja frá aðalvali nemenda til þess að unnt sé að setja saman stundatöflu og eru þá áfangar úr varavali settir inn í stað þeirra áfanga sem ekki komust úr aðalvalinu inn í stundatöflu.

Valið er bindandi. Nánara fyrirkomulag á vali er auglýst í skólanum hverju sinni. Eftir að úrslit prófa liggja fyrir staðfesta nemendur val sitt óbreytt eða með breytingum ef forsendur hafa breyst. Forsendur fyrir breytingum eru:

1. Fall í áfanga

2. Breyting á hraðferðarheimild

3. Synjun P-umsóknar

4. Valinn áfangi er ekki í boði

Ófrávíkjanleg skylda er að staðfesta val fyrir næstu önn ellegar gefa staðgengli umboð til þess að staðfesta val eða breyta ef við á.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf