Menntaskólinn við Hamrahlíð

a) Að sinna heilbrigðisfræðslu: Hafa þannig jákvæð áhrif á viðhorf nemenda til þess að tileinka sér heilbrigt líferni og auka þekkingu þeirra á leiðum til

Hlutverk hjúkrunarfræðings

a) Að sinna heilbrigðisfræðslu: Hafa þannig jákvæð áhrif á viðhorf nemenda til þess að tileinka sér heilbrigt líferni og auka þekkingu þeirra á leiðum til þess. Minnka þannig líkur á að nemendur tileinki sér hegðun sem ógnar heilsu þeirra svo sem að seinka/koma í veg fyrir reykingar, áfengisneyslu og neyslu annarra vímuefna.

b) Að hafa ákveðinn viðtalstíma: Þar sem nemendur geta gengið að því vísu að fá einstaklingsbundna hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf, stuðning og/eða leiðbeiningar um þá þjónustu sem er í boði hjá öðrum aðilum.

c) Að bjóða upp á fræðslu eða stuðning fyrir nemendur sem vilja breyta lífsháttum sínum til aukins heilbrigðis (hóptímar).

d) Að vera virkur þátttakandi í að framfylgja forvarnarstefnu skólans. Vera í forvarnarteymi ásamt öðrum fulltrúum.

e) Að hafa eftirlit með aðbúnaði nemenda, kennara og annars starfsfólks og vera starfsfólki innan handar með sín heilsufarsmál.

headerheaderheaderheader

Skólaskjár

Góðan daginn

Bókasafnið er opið í prófunum alla virka daga kl. 8 – 18

Einnig er opið laugardaginn 5. maí kl 10 – 14.

 

 



 

 

 

 

 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf