ÞÝSK1AA05 - Þýska 1

Ætlað byrjendum sem ekki hafa neina kunnáttu í tungumálinu. Megináhersla er lögð
á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru
nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun.
Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði
málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa.

 

Námsmat:
Annareinkunn gildir 50% á móti lokaprófi sem gildir 50%. Inn í annareinkunn reiknast
ýmis verkefni, hlutapróf, munnleg próf og hlustunarpróf sem tekin eru jafnt yfir önnina.