SÆNS3DD05 - Sænska 4

Stutt lýsing á áfanga:

Bókmenntaáfangi þar sem nemendur lesa sænskar bókmenntir og ræða innihald þeirra. Í þessum áfangi lesa nemendur þrjár sænskar skáldsögur og skrifa bókmenntaritgerðir um þær. Í kennslustundum ræða nemendur og kennari lesið efni. Nemendur öðlast aukna þekkingu á krefjandi bókmenntaverkum og færni í að vinna með þau. Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun, lesskilningi og ritfærni.

Áhersla er lögð á að nemendur geti notað málið markvisst til þess að miðla fróðleik, bæði munnlega og skriflega, sýnt í verki aukið vald á ritmáli og að þeir hafi fjölbreyttari orðaforða og geti tjáð hugsanir sínar skýrt í riti og rökstutt skoðanir sínar hvað varðar bókmenntalega túlkun.

Námsmat: Símat sem byggist á vinnuframlagi nemanda á önninni: þrjár bókmenntaritgerðir (samtals 100%).