ENSK2BB05 - Enska 2

 Stutt lýsing á efni áfangans:

Áhersla er lögð á að nemendur verði enn betur læsir á fræðilega
texta. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða akademískra texta, tjá hugsun sína
skýrt í riti og rökstyðja skoðanir sínar. Í fyrirrúmi er vandlegur lestur texta með það fyrir
augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Lesið er bókmenntaverk úr hinum
enskumælandi menningarheimi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri
ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum.

Nokkur lykilhugtök áfangans:Akademískur orðaforði, vinna með orðabækur, heildarmerking texta,
uppbygging ritgerða, rökstuddar skoðanir, helstu hugtök bókmenntaumræðu, munnleg tjáning,
menningarumhverfi, mismunandi málsnið í ensku.
Námsmat: Verkefni, smápróf, ritun, ástundun og lokapróf.