ENSK2AB10 - Enska 1 og enska 2 hraðferð

Staða áfanga:

Áfanginn er hraðferð þar sem farið er yfir efni fyrstu tveggja kjarnaáfanga í ensku, ENSK2AA05 og ENSK2BB05.

Áfanginn er undanfari fyrir eftirfarandi áfanga: ENSK3CC05/ENSK3CH05

Stutt lýsing á efni áfangans:Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á fræðilega texta. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér akademískan orðaforða, tjá hugsun sína skýrt í riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Lesin eru bókmenntaverk úr hinum enskumælandi menningarheimi. 

Nokkur lykilhugtök áfangans: Akademískur orðaforði, vinna með orðabækur, uppbygging efnisgreina, rökstuddar skoðanir, helstu hugtök bókmenntaumræðu, munnleg tjáning,menningarumhverfi, mismunandi málsnið í ensku.

Námsmat: Verkefni, smápróf, ritun, ástundun og lokapróf.