Fréttir og tilkynningar

Hæfileikar í lok vetrar

24.04.2024
Í kvöld, síðasta vetrardag, héldu nemendur á fjölnámsbraut í MH, stórglæsilega hæfileikakeppni fyrir starfsbrautir framhaldsskólanna. MH vann keppnina 2023 og var því gestgjafinn í ár. 8 skólar voru með atriði sem voru af ýmsum toga og sýndu nemendur mikla og fjölbreytta hæfileika. Einvala lið var í dómnefnd og fóru leikar þannig að Fjölbrautaskólinn í Garðabæ sigraði, MH varð í öðru sæti og Flensborg í Hafnarfirði í því þriðja. Við óskum öllum sem tóku þátt innilega til hamingju og takk fyrir glæsilegt kvöld. Gaman að enda veturinn á þennan hátt. Gleðilegt sumar.

Plokkað í MH

22.04.2024
Starfsfólk og nemendur fóru út í góða veðrið í hádeginu í dag og tíndu rusl af lóð skólans. MH hefur tekið þátt í Stóra plokkdeginum undanfarin ár en það er liður í aðgerðum fræðsluáætlunar í umhverfismálum. Vorveðrið lagðist á sveif með duglegum MH-ingum og sá til þess að öll gátum við notið útiverunnar og unnið þarft verk í leiðinni.

IB-nemendur á Þingvöllum

21.04.2024
Nemendur á fyrra árinu í IB fóru á Þingvelli með kennurum sínum í efnafræði, eðlisfræði og líffræði og unnu þverfaglegt verkefni á fallegum degi í fallegri náttúru. Í ferðinni voru nemendur að velta fyrir sér loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á vistkerfi Þingvalla. T.d. voru þau að skoða lífríkis Þingvallavatns, mengun á svæðinu, ferðaþjónustu í héraðinu, jarðvarmavirkjunar í kringum svæðið, náttúrvernd og ýmislegt fleira. Verkefnið kallast CSP (Collaborative sciense project) og munu nemendur kynna niðurstöður sínar á Miðgarði 23. apríl milli 16:00 og 17:00. Markmiðið er að allir nemendur árgangsins vinni saman að því að skoða "Global issue in local context". Markmið skv. fyrirmælum IB er að hafa ALLA nemendur árgangsins að vinna saman til að skoða "Global issue in local context". Nemendur áttu að velja sér rannsóknarspurningu í þessu samhengi og vinna saman í litlum hópum.

Myndbandið „Samþykki, mörk og náin samskipti“ sýnt í MH

18.04.2024
Í hádeginu 18. apríl var myndbandið „Samþykki, mörk og náin samskipti“ sýnt nemendum og starfsfólki skólans. Höfundar myndbandsins eru Sólborg Guðbrandsdóttir og Þorsteinn V. Einarsson. Viðburðinum var stjórnað af nemendum og ávarp fluttu Urður Bartels nemandi og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra. Auk þeirra komu fram jafnréttisfulltrúi skólans og fulltrúar feminstafélags NFMH, Emblu. Myndbandið fjallar um samþykki, mörk og náin samskipti nemenda í framhaldsskólum. Efnið er í samtalsformi og út frá reynsluheimi og orðfæri nemendanna og var því vel tekið af MH-ingum.

Söngvaseiður

16.04.2024
Við getum ekki hætt að tala um söngleikinn okkar, Söngvaseið. María Hjörvar og Sara Gunnlaugsdóttir, oddvitar leikfélagsins mættu í bítið í morgun og sögðu frá söngleiknum sem er að gera allt vitlaust þessa dagana. Nú þegar hefur verið uppselt á 3 fyrstu sýningarnar og er að seljast upp á þá fjórðu sem er á fimmtudaginn. Sýningin er alveg stórkostleg upplifun og ótrúlegir hæfileikar sem eru þarna á ferð.

Viltu vinna frían Interrail passa og flug til Evrópu?

16.04.2024
16. apríl hefst nýtt Discover EU happdrætti. Með DiscoverEU passanum fá 50 íslensk ungmenni tvisvar á ári frían Interrail passa og flug til Evrópu. Síðustu tvö ár hafa 200 Íslendingar unnið í happdrættinu.

Ný kjarnastjórn fyrir haustið 2024

12.04.2024
Í gær fóru fram kosningar til embætta í nemendafélagi MH, NFMH. Niðurstöðu kosninga í kjarnasjórn eru þannig að nýr forseti er Arnaldur Halldórsson, nýr varaforseti er Benedikt Freyr Þorvaldsson, nýr gjaldkeri er Valgerður Birna Magnúsdóttir og nýr markaðsstjóri er Helga Birna Hauksdóttir. Við óskum þeim til hamingju með kosninguna og hlökkum til að vinna með ykkur næsta vetur.